Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið haus 1

Vika 4 að byrja

3. febrúar 2008 · 2 ummæli

Tíminn er ótrúlega fljótur að líða.  4 vikan er að byrja á morgun. Vigtun á morgun.Gaman að sjá hvernig það kemur út.

Hreyfing dagsins
32.mín bretti (hlaup 25 mín og labbaði 5 mín í 7% og rólega í 2 mín. 3.66km)
15 mín  hjól. 10km
Magaæfingar og hliðaræfingar og teygjur
Alls = 1klt og 2mín 590 kcal

Matardagbók
MM: Cherioos með fjörmjól
H: Banani. Próteinsheik m haframjöli,fjörmjólk,frosin jarðarber, smá vaniluskyr
MM: hafrakaka og kaffi late
MM: próteinstykki
KM: Hakkblanda og spelt spagetí.

Tók svo 2klt göngu um miðbæin með stoppi á bókasafninu og kaffihús. Æðislegt vetur.
Nú er bara að standa sig vel næstu viku.

Markmið viku 4.

  • Fara 6 sinnum í rætina
  • Taka alveg 100% á því
  • Hlaupa í 20min á level 8!
  • Vera jákvæð - heima-vinnunni og ræktinni.
  • Muna að ég geti ALLT sem ég tek mér fyrir hendur og mun standa mig vel í því

Eigið góða vinnuviku:-)

→ 2 ummæliFlokkun: Óflokkað

Þá er að byrja að blogga

2. febrúar 2008 · Engin ummæli

Þá er ég byrjuð aftur.

Ég byrjaði 14 jan á námskeið líkami fyrir lífið í World Class. 3 vikan er að klárast.  Maður æfir sjálfur og fær hvatingar póst frá þjálfaranum sem er yfir námskeiðinu í hverju viku. Einu sinni í viku eru göngutúrar. Þetta er 12 vikna námskeið. Við fáum næringarfræðing til að fara yfir matarræði.Skilum inn matardagbók til hennar og svo hreyfidagbók til þjálfarans.

Mér hefur gengið vel það sem komið er. Ég er að fara að minnsta kosti 5 sinnum í viku í ræktina. Ég tek efri hluta einn dag, næst tek ég brennslu og svo næsta dag tek ég neðri part. Alltaf svon til skiptis.

Við fáum mælingu í byrjun, eftir 6 vikur og svo aftur eftir 12 vikur og þá er uppskeruhátið og sá sem stóð sig best vinnur. Spennandi. Ég stefni auðvita á að vinna. Ég skal. Vhá hvað það yrði gaman og myndi peppa mann til að halda áfram.

Nú verður spennandi að sjá hvað ég verð duglega að blogga. Kannski ekkert spennandi blogg því hér mun koma, hvað ég borða yfir daginn, hvað ég hreyfi mig yfir daginn og hvernig mér líður yfir daginn.

Þegar ég byjarði var ég 98, eitthvað kg! Ég skal skal skal komast í 70 kg á þessu ári. Ég á stór afmæli um mitt árið og markmið er að vera alvega komin langleiðina að 70kg. Í ágúst ætla ég svo að hlaupa 10km eða hálft maraþon… Mitt aðalmarkmið… spennandi.

Nú er aðalega að vera jákvæð og sjá fyrir sig lokamarkmiðið. En fyrst tek ég bara 5 kg í einu. Ég ætla að ná þeim fyrir 1.mars.

Ég get,ætla og skal takast að ná mínum markmiðum.

Afhverju ætti ég ekki að geta það eins og allir hinir??

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað