Vika 7 | Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið haus 2

Vika 7

25. febrúar 2008 · 2 ummæli

æi hefði nú ekki átt að vera með einhverja yfirlýsingar um létting. Vaknaði í morgun eitthvað voðalega skrýtin en dreif mig í ræktina.Geri nú ekkert þar að viti, reyndar lyfti efti part en nennti ekki að brenna í lokinn. Fór á vigtina og var bara þyngri en síðasta mánudag og var líka með mikið bjúg og öll svona þung á mér og þreytt.
Ég borðaði reyndar óhollt á föstudaginn (pizzu) og svo aftur í gær en þá var brunch hjá okkur í tilefnis konudagsins og þar var boðið uppá pulsur,beikon,egg og pönnukökur og auðvita (ansans) fékk ég mér heldur mikið. og þegar leið á daginn fékk ég bara þvílíkan hausverk og leiðindi. Líkaminn ekki vanur að borða svona ógeð og var bara að mótmæla.

Ég ákvað því að hafa vigtunardag á föstudögum! - og því kem ég bara með tölu á föstudaginn.

Ég keypti mér fífla-te í dag, það á að losa vatn. Vonandi að það virki

Ég ætla svo að taka góða brennslu í fyrramálið.

Svo er í boði í næstu viku að fara í baðstofuna í Laugum… vhá hvað ég hlakka til. einmitt það sem ég þarf núna.
Svo ætla ég að reyna að skella mér í göngutúrin á morgun með LKFL hópnum.

Flokkun: Óflokkað

2 ummæli fram að þessu ↓

  • Lilja // 25. feb. 2008 kl. 22.44

    Þú verður búin að losa þig við þetta á föstudaginn ;) Svona getur nú vigtin verið leiðinleg við mann stundum. Ég er vonandi núna að síga niður á við aftur.

  • Dídí // 26. feb. 2008 kl. 13.29

    Merkilegt hvað maður getur safnað miklu vatni, sérstaklega ef maður borðar mikið brauð finnst mér!

    En gangi þér vel! Þú færð ábyggilega fína tölu á föstudag. :)

Rita ummæli