Vika 6 | Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið

Líkami fyrir lífið haus 2

Vika 6

19. febrúar 2008 · 2 ummæli

Ég vigtaði mig í gær og þá var ég búin að léttast um 800gr síðan í síðustu viku. Ég er bara sátt við það

Það er svo mæling á morgun á námskeiðinu og ég er spennt að sjá hvernig það kemur út. Svo var að byrja heilsuátak í vinnunni og búið að skipta okkur upp í lið. Maður fær 1 punkt fyrir hvern 1/2 tíma sem maður hreyfiir sig á dag , mesta þó 4 punkta yfir daginn. Svo er kemur þjálfari og mælir okkur í byrjun og enda átaksins. Einu sinni í viku eru svo hóptímar sem allir verða að mæta í annars æfir maður bara sjálf.

Hreyfing í gær:
50 mín stigavelin.  -Góða brennsla

Í morgun :
Tók ég 5 mín á skíðavélinni
Neðri part
15 mín brettið.
Mjög góð æfing.

Ég er ekki búin að borða nammi í 6 VIKUR, er þokkalega sátt við það.

Nú er bara að halda áfram og rústa þessari keppni:-)

Flokkun: Óflokkað

2 ummæli fram að þessu ↓

  • Dídí // 20. feb. 2008 kl. 0.12

    Til hamingju með léttinginn. ;)

  • Lilja // 20. feb. 2008 kl. 14.09

    Flott hjá þér. Nú bara rústar þú þessari keppni ;D Greinilega margir vinnustaðir með eitthvað svona átak… ekki er neitt slíkt á mínum. Á slysó er bara alltaf verið að ota að manni sælgæti :S

Rita ummæli