þá er það ný vika.
Markmið síðustu viku stóðs ekki alveg. Fór bara 4 sinnum en ætlaði mér 6 sinnum. þessi 2 skipti sem ég ætlaði var vegna veðurs og svefnleysis. Matarmálin hefðu mátt vera betri. Enda var Bolludagur og sprenigdagur.
Nú er ný vika og þá er bara standa sig vel. Fór á vigtin í morgun og það hafi bara farið niður um 200gr
95,8 en ég tók fitumælingu og síðan í endan nóv er ég búin að lækka um næstum 3%. En ég er alveg ánægð með það.
En í næstu viku er formleg mæling á námskeiðinu, spennandi að sjá hvað er að gerast hjá mér.
Þessa vikuna ætla ég að þyngja hjá mér og taka enn meiri brennslu.
Hreyfidag
Hlaup í 10mín
Tók efri hlutan og þyngi vel 3X15
Svo fór ég á stigavelin og tók reyndar bara 10mín
Hafði bara ekki meiri tíma.
En það var mjög erfitt að vakna í morgun. Dreif mig samt kl 6:10 í morgun. Það er svo frábært að byrja daginn á ræktinni og vhá hvað mér líður vel allan daginn.
Matardagbók
mm: hafragrautur
Mm: banani
HM: salta og soðin ýsa og ein kartafla.
Mm: epli og skyr drykkur
Km:kjúklingur og franskar arrgggg ( fékk boð um mat)
Kk: popp og ég fékk mér sykrað Kók…..
Ég er sko ekki sátt yfir að hafa misst mig. Nú verð ég að brenna extra mikið í fyrramálið. Ég má ekki missa mig svona. það er bannað. Ef ég ætla að vinna þessa keppni þá verð ég að fara taka matarræði mjög alvarlega… ég skal skal skal SKAL ( smá garg HÉR) . Ég ætla að skila inn matardagbók fyrir þessa viku til næringarfræðingsins á námskeiðinu. Athuga hvort það heldur mér ekki við efnið…. arrggg
Nú er bara að stefna á góðu hlutina og vera jákvæð.
1 ummæli fram að þessu ↓
Lilja // 11. feb. 2008 kl. 20.29
Já, vertu nú dugleg. Ég þarf svo sannarlega að taka mig á.
Rita ummæli