Ég tók frí daginn minn í gær í ræktinni. Litla skottið mitt vaknaði 5:30 á fimmtudagsmorgun og vildi bara fara á fætur, en hún sofnaði svo kl rúmlega 6 og ég varð bara að fá meiri svefn. Svo var náttúrulega brjálað veður í morgun og í allan dag þannig að ég fór heldur ekkert í dag. En ég skal fara á morgun og sunnudaginn. En þá hef ég farið 5 sinnum þessa vikur. Kíkti aðeins á vigtin í morgun og það leyt bara vel út. Vonandi að helgin verði góð.
Maturdagbókin í dag ( man bara ekki hvernig dagurinn í gær var)
MM:próteinsheik með fjörmjólk
Kaffi: ab- jarðarberjardrykkjar
HM: fór á thorvalsen og fékk mér e-h kjúklingarétt sem var ekkert sérstaklega góður
Kaffi: úps fékk mér 4 mjókurkex og mjólkurglas!!!
KM: vaniluskyr og ein brauðsneið , fékk mér svo harðfisk og smá smjör með
Ég hefði vilja komast í ræktina í dag en ég tek bara extra á því um helgina
Reyndar er ég að fara út að borða í Perluna anna kvöld og jafnvel að ég fái mér eitthvað “drekka” er ekki alveg búin að ákveða það.
Góða helgi
Engin ummæli fram að þessu ↓
Engin ummæli ennþá...Fylltu út reitina hér fyrir neðan og vertu fyrstur.
Rita ummæli